SUP NÁMSKEIÐ

Adventure Vikings og SUP Iceland ætla bjóða upp á skemmtilegt SUP námskeið fyrir alla fjölskylduna á þriðjudögum í sumar kl 18:00. Síðasta sumar komust færri að en vildu og verður gaman að geta boðið uppá þetta námskeið aftur í ár.

Hnitmiðað og skemmtilegt byrjendanámskeið í öruggu umhverfi við Hvaleyrarvatn eða Hafravatni, fer eftir veðri.  Þáttakendur fá tækifæri til að læra réttu handtökin, meðhöndlun á búnaði, öryggisatriði og hitta aðra þáttakendur sem eru að fóta sig í sportinu.

Námskeiðið stendur yfir í 2 klukkustundir. (1-1,5 klst í róðri útá vatni)

– Eftir námskeið: Þátttakendum stendur til að bóka SUP ferð á 25% afslætti.

Reykjavik City SUP and Sunset Tour 
SUP Into the Forgotten Fjords

Leiðbeinendur Adventure Vikings og SUP Iceland eru með góða reynslu úr SUP sportinu og hafa stundað vatnasport frá ungaaldri. Þess má til gamans geta að við erum við með fyrsta ASI SUP INSTRUCTOR kennarann á íslandi í teyminu okkar.

 ATH: Námskeiðin eru háð veðri og vind.  Ef við þurfum að aflýsa vegna veðurs reynum við að halda námskeiðið daginn eftir (Miðvikudag) eða frestum um viku ef þess þarf.

Verð:

19.990 kr.

Tilboðsverð fyrir sumarið 2024:  14.900 kr. (Allur búnaður innifalinn)

Kröfur og öryggisatriði:

  • Þátttakandi þarf að kunna að synda
  • Þátttakandi má ekki vera barnshafandi
  • Lámarks þáttaka eru 5 manns á námskeiði
  • Hámark 12-14 manns á námskeiði
  • Lámarks aldur 12 ára
  • Hámarks aldur 65 ára
  • Lámárks hæð 150 cm
  • Hámarks hæð 200 cm
  • Lámarks þyngd 50 kg
  • Hámarks þyngd 120 kg(nema þátttakandi komi með sinn eigin galla)

Eftir námskeiðið eiga nemendur að þekkja:

  • Grunninn um SUP sportið
  • Meðhöndlun á SUP búnaðinum
  • Lesa aðstæður
  • Öryggissatriði
  • Tæknin við að róa

Hvað búnað er gott að taka með sér :

Undirlag / Ull eða hlý föt til að vera í innan undir í þurrgallanum

  • Hlý föt til skiptana
  • Hlýa ullar sokka
  • Húfu og vettlinga
  • Handklæði til vara
  • Nesti eða bara eh til að drekka

SKRÁNING:

Við mælum með að þú skráir þig á námskeiðið  í bókunarkerfinu hérna til hliðar en ef þú hefur einhverjar fleiri spurningar að þá geturðu sent okkur tölvupóst á info@adventurevikings.is eða með því að hringja í 571 2900

ATH: Ef breyta þarf bókun með minna en 48 klst fyrirvara er gjald tekið fyrir, 6000 ISK á mann

Full endurgreiðsla í boði ef aflýst er með amk 48 klst fyrirvara