SUMARIÐ 2019

Ásamt því að bjóða upp á Sup námskeið fyrir hópa að þá ætlum við líka að bjóða upp á einkakennslu. Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem vilja fá dýpri og persónulegri SUP kennslu og einnig er þetta frábært fyrir fjölskyldur og litla hópa sem vilja koma í kennslu saman. Einkakennslan er í boði alla daga og kvöld vikunnar og stendur yfir í 4-5 klukkustundir.

Allir kennarar Adventure Vikings og SUP Iceland eru með mikla reynslu úr SUP sportinu og hafa stundað vatnasport frá unga aldri.

Hvað koma þáttakendur til með að læra á Sup Námskeiðinu :
Allt um SUP sportið – Meðhöndlun á búnaðinu – Lesa aðstæður – Öryggissatriði – Tæknin við að róa

Hvað búnað þurfa þáttakendur að taka með sér :
Hlý föt – Sundföt innan undir blautgallan – Handklæði – Nesti

SKRÁNING
Skráðu þig á námskeið með því að senda okkur tölvupóst á
info@adventurevikings.is eða með því að hringja í 5712900

Verð : Fáðu tilboð