SUP NÁMSKEIÐ
Adventure Vikings og SUP Iceland ætla bjóða upp á skemmtilegt SUP námskeið fyrir alla fjölskylduna á þriðjudögum í sumar kl 18:00. Síðasta sumar komust færri að en vildu og verður gaman að geta boðið uppá þetta námskeið aftur í ár.
Hnitmiðað og skemmtilegt byrjendanámskeið í öruggu umhverfi við Hvaleyrarvatn eða Hafravatni, fer eftir veðri. Þáttakendur fá tækifæri til að læra réttu handtökin, meðhöndlun á búnaði, öryggisatriði og hitta aðra þáttakendur sem eru að fóta sig í sportinu.
Námskeiðið stendur yfir í 2 klukkustundir. (1-1,5 klst í róðri útá vatni)
– Eftir námskeið: Þátttakendum stendur til að bóka SUP ferð á 25% afslætti.
Reykjavik City SUP and Sunset Tour
SUP Into the Forgotten Fjords
Leiðbeinendur Adventure Vikings og SUP Iceland eru með góða reynslu úr SUP sportinu og hafa stundað vatnasport frá ungaaldri. Þess má til gamans geta að við erum við með fyrsta ASI SUP INSTRUCTOR kennarann á íslandi í teyminu okkar.
ATH: Námskeiðin eru háð veðri og vind. Ef við þurfum að aflýsa vegna veðurs reynum við að halda námskeiðið daginn eftir (Miðvikudag) eða frestum um viku ef þess þarf.