SURF Námskeið
SURF námskeið á Íslandi, hefur þig alltaf langað til að prófa að surfa ?
Adventure Vikings og SURF.IS bjóða upp á surf námskeið allt árið um kring í öruggu umhverfi í nágrenni Reykjavíkur. Við leggjum okkur fram við að undirbúa þáttakendur vel í undirstöðu brimbrettasportsins og öryggisatriðum í landi áður en við förum út í öldurnar og prófum í fyrsta skipti. Það er gríðarlega mikilvægt að fólki líði vel á brettinu áður en við reynum að stíga fyrstu ölduna.
Einkakennsla einnig í boði ! (lámark 8 mannns)
Ath:
Þegar við sjáum fram á að halda námskeið, sendum við póst á biðlista hjá okkur með 2-4 daga fyrirvara. Við fylgjumst með veðri, vind, ölduspá, flóði og fjöru – og reynum að fara út á helgum. Lámarksþáttaka eru 8 manns en hámark 14 manns.
Til þess að komast á biðlista verður að bóka hvaða dag sem er hér á vefsíðuni og senda okkur svo línu um hvaða dagar henta best fyrir ykkur og við skráum það hjá okkur.
Veður:
Skólinn er háður veðri og ekki er farið út ef öldurnar eru of litlar eða of stórar. Við vitum þetta innan tveggja daga og sendum út tilkynning með staðsetningu og tíma. Ef sjó- og veðurspá reynast ekki eins og gert var ráð fyrir fá þáttakendur annað tækifæri til að taka þátt.
Hér er hægt að skoða spánna.